Bullið hennar Ingu

Velkomin(n) á bullið mitt

17.09.2008 22:17:30 / inga_sig

það er komin dama

það fæddist lítil dama í morgun klukkan 5:00 hún var 3400 gr og 51 cm fæðingin gekk vel

» 19 hafa sagt sína skoðun

02.09.2008 00:08:36 / inga_sig

no 2 er komið :))

það fæddist stúlka út í eystlandi 20 ágúst tæpar 18 merkur og 55 cm og hefur hún fengið nafnið Anna Charlotta.
svo er farið að styttat í næsta það sett 11 sept
Annars er lítið að frétta af mér ég lifi mínu mauralífi ,vinna,borða og sofa :)




» 18 hafa sagt sína skoðun

07.04.2008 20:24:49 / inga_sig

No.1 á þessu ári komið

Ætli það sé ekki kominn tími á smá blogg ;) .Það fæddist lítil stúlka 1 apríl, og er búið að nefna hana í höfuðið á ömmum sínum :d , semsagt það er búið að yngja mig upp á daman að heita Ingibjörg Jóna .
Svo erum við "gömlu" að fara aftur til Tenerife núna í september og ætlum við að vera í tvær vikur í þetta skiftið 8) .
ég ætla að fara að horfa á amerikan idol núna.
bæbæ í bili
Inga


» 12 hafa sagt sína skoðun

01.02.2008 21:37:41 / inga_sig

Hmmm.......þau verða 3

Mikið er ég rík kona........... ég fæ ekki 1, ekki 2, heldur 3 barnabörn á þessu ári :)

En af mér er bara allt gott að frétta, ég er að vinna alla daga, er komin í það að sjá um frystirinn og taka til sendingar alla daga og á fimmtudögum fer ég á ak í með sendingar.

Núna fer að styttast í þorrablótið hjá okkur, vonandi verður það jafn gaman eins og venjulega :)

kveðja Inga 


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 00:40:49 / inga_sig

Nýtt ár :)

Þá árið er liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur til baka................

Ýmislegt gerðist á árinu, í mars eignaðist ég lítinn ömmustrák :) og er hann fjörkalfur hinn mesti.

Í júni lok hélt Bjössi svo uppá hálfrar aldar afmæli sitt með pomp og prakt,,,,,,,,,,,í ágúst fékk ég svo að vita að það væri von á einu ömmubarni í viðbót á það að fæðast um mánaðamótin mars-apríl :D, sumarið leið með leiðindar veðri .......en það böggaði mig ekkert því ég var að vinna :/ Í birjun október tók ég mér viku frí og við gömlu skelltum okkur til tenerife til að hlaða batteríin....... alveg yndisleg vika 8),svo núna fyrir áramótin fengum við í vinnunni að vita að það hefði verið enn eitt metárið hjá okkur bæði í útflutningi og líka í innanlandssölu :) svo núna milli jóla og nýárs trúlofaði örverpið mitt sig :o........svo fékk ég tilkynningu á nýársnótt um að það væri annað ömmubarn á leiðinni ;)                                                                                                                                  Ég óska þeim sem þetta lesa árs og friðar með þökk fyrir það liðna :)   Inga                                                                                       


» 14 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 21:15:56 / inga_sig

.......

Það hefur komið ósk um "ferðasögu" .................

 ég hef bara ekki dottið í gírinn enn til að púnkta hana nyður en það verður nú trúlega ekki langt í það ;) En ég get allavegana sagt það að við erum ákveðin í að fara aftur næsta ár og vera þá allavegana tvær vikur :P Kanski ég setji inn nokkrar myndir úr ferðinni......... bæ bæ í bili Inga


» 10 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 22:00:38 / inga_sig

Tími á blogg :)

það er kominn tími á smá blogg :) :$ 

Við gömlu erum að skreppa á tenerife eftir 2 vikur og ætlum að vera í eina viku þar í sólinni 8)  Annars er ósköp lítið að frétta......... það er að vísu eitt ömmubarn á leiðinni :) bara gaman að því það á að fæðast í mars :)

Þeir fáu sem kíkja á þetta  kvitta fyrir sig ........PLÍÍÍSSSSS :)

bæ bæ í bili Inga 


» 19 hafa sagt sína skoðun

07.07.2007 22:05:42 / inga_sig

07-07-07

Er ekki kannski kominn tími á smá blogg :) Um síðustu helgi hélt kallinn minn upp á 50 ára afmælið sitt með pomp og prakt í Árskógi þar mættu eitthvað um 90-100 manns og heiðruðu hann :) Takk elsku dúllurnar míar sem gerðu þetta mögulegt með frábærri aðstoð við allt, þar er ég að meina börnin okkar og tengdabörn :) :)

Annars hefur lífið gengið út á vinnu og meiri vinnu ég er ekkert sumarfrí búin að taka eða plana kannski tek dag og dag einhverntíman..........svo er að vísu draumur um að skreppa út í haust en hvort hann rætist er annað mál 8)  kemur í ljós :|  ................. en jæja þetta er nóg í bili bæ bæ Inga


» 11 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 22:32:52 / inga_sig

1 maí

1 maí í dag og vorilmur í loftinu,farfuglarnir komnir og jörðin farin að grænka. Mikið svakalega er tíminn fljótur að líða...........Ég ætla að vona að tíminn verði fljótur að líða hjá henni Sögu minni og hún skemmti sér vel í Noregi næstu 3 mánuðina, hún er að fara í fyrramálið út þessi elska en vonandi hefur hún gott af þessu, aðeins að breita til og skipta um umhverfi.Annars er allt gott að frétta af öllum.                                                                                                Bæbæ í bili Inga

» 6 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 23:26:04 / inga_sig

2 ár :)

Í dag eru 2 ár síðan ég fór í aðgerðina sem hefur breitt og bætt líf mitt og mæli ég hiklaust með þessu við alla sem eru að spá og hafa tækifæri í að komast í................en þá VERÐUR viðkomandi að fara eftir öllu sem er sagt að eigi að gera..........ég veit nefnilega um nokkra aðila sem ekki hafa gert það og þeir aðilar eru núna í vondum málum, mis vondum að vísu........en það er sama það verður að fara eftir því sem er sagt!!   :) það er annars ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða, ég man þegar Hjörtur var að útskrifa mig þá spurði hann mig hvað takmarkið væri hjá mér að missa mörg kíló og ég sagði 50-55 og hann var mjög sáttur við þá tölu hjá mér, en núna er ég búin að missa síðan eftir aðgerðina 62 kg og er mjög sátt við það :) Núna er það bara draumurinn að komast í svuntuaðgerð.............en það verður nú bara að vera draumur í bili allavegana........... jæja nóg af bulli núna bæ bæ Inga


» 15 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 19:48:06 / inga_sig

Hann er fæddur :)

Loksins er drengurinn fæddur og hefur verið nefndur Sigurbjörn Kristján hann kom í heiminn 27 mars kl 21:45 :)

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.03.2007 16:49:27 / inga_sig

enn ekkert...........

Að gerast hjá Hófý..........en sem betur fer er rokið búið í bili allavegana........

» 8 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 20:51:12 / inga_sig

Ekkert að gerast.........

Það bólar ekkert á barninu hjá henni Hófý minni..........þetta verður lítill þrjóskur hrútur ;) það átti semsagt að fæðast í fiskamerkinu en ákvað að það væri mikið betra að vera í hrútsmerkinu (sem ég er alveg sammála) þar sem ég er í því merki :) Annars er svosem ekki mikið að frétta.............ég reyni að halda mér í þessari þyngd sem ég er búin að ná..........ég segi reyni :$ það er ekki það að ég sé að þyngjast heldur verð ég að passa mig að halda ekki áfram að léttast :lol: svolítið skondið það......... manneskja sem hefur verið alla sína ævi að berjast við að léttast þarf svo allt í einu að passa sig að léttast ekki of mikið:S en ég er það beinastór að ég má ekki léttast meira........... en ekki meir um það, mikið ofboðslega fer þetta fjárans ROK í pirrurnar á mér.......... ég ætla bara að vona að Hófý fari ekki á stað í nótt.........ég efast um að ég kæmist inn á Ak. Jæja ekki meir að sinni bæ bæ Inga


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 22:07:06 / inga_sig

:)))))))))

Það fæddist lítil prinsessa í Færeyjum í gær tæpar 12 merkur og 50 cm..........:) Svo núna "situr" maður bara og bíður eftir næsta barnabarni :)                                                                            bæ bæ í bili Inga...........

ps.það er ekki bannað að commetnta......... 


» 8 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 18:56:11 / inga_sig

Lífið er saltfiskur ;)

Hjá mér hefur lífið snúist um saltfisk síðustu daga og vikur......... en í dag tók ég mér frí eftir hádegið og skellti mér aðeins á Ak.... kíkti aðeins í fatabúð sem er með allt á 1000kall og fann mér 6 flíku :)  Núna fer að styttast í nýjasta ömmubarnið og bíð ég í startholunum hún Hófý mín vill nefnilega hafa mömmu sína hjá sér þegar hún fæðir.........það er spennandi ég hef ekki verið viðstödd fæðingu áður (nema þegar ég hef verið að fæða) en ég tel það ekki með, svo er spennandi að vita hvort hálfsystir hennar í Færeyjum verður á undan eða eiga þær sama dag.........eða............og eins hvort kynið verður :)                                                                                                 Jæja ekki meir í bili bæ bæ Inga


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Dagsetning
27. janúar 2012
Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 25079
Klukkan